25.10.2010 | 18:30
Hjálpaðu barninu þínu að bera fram S og R!

Nýtt íslenskt námsefni er komið út sem ætlað er að hjálpa foreldrum og fagfólki að vinna rétt með undirbúning hljóðmyndunar barna. S og R framburðarbækurnar eru sjálfstætt framhald af grunnefninu ,,Lærum og leikum með hljóðin" sem kom fyrst út árið 2008. Sú bók naut mikilla vinsælda hjá einstaklingum, fjölskyldum og skólum um land allt.
S og R bækurnar - nýtt og spennandi efni!
Í S og R bókunum er unnið með stigvaxandi þyngd á framburði orða með hljóðunum fremst, aftast og í miðju orða. Einnig eru hljóðin æfð í samhljóðasamböndum, eyðufyllingum, setningum. rími, hlustun, heyrnarminni og í örsögum. Framburðarbókunum fylgja spilaspjöld í A -3 stærð til að æfa hljóðin enn frekar.

Halla Sólveig Þorgeirsdóttir teiknar frábærar myndir í nýju bókunum og teikningar Búa Kristjánssonar frá fyrri bók lifa einnig áfram í námsefninu.

Framburðarbækurnar eru til stakar fyrir foreldra hjá höfundi, í verslunum Pennans - Eymundssonar um allt land, í A -4 Skrifstofa og skóli, Bóksölu Stúdenta og hjá Talþjálfun Reykjavíkur. Hvorri bók fyrir sig fylgja A -3 spilaspjöld.
Framburðaröskjunum; Lærum og leikum með hljóðin - S bókin; framburðaraskja og Lærum og leikum með hljóðin - R bókin; framburðaraskja, fylgir tvöfalt sett af öllum myndaspjöldum til æfinga auk leiðbeininga. S og R framburðaröskjurnar koma nú í þykkari öskju og öll myndaspjöld eru 350 mg þykk.
Kjörið námsefni til að vinna með í samstarfi við talmeinafræðinga.
Pantanir og frekari upplýsingar á laerumogleikum@gmail.com
Með vinsemd,
Bryndís Guðmundsdóttir M.A.CCC - SLP, talmeinafræðingur
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.